Læknanám í Ungverjalandi
Fyrstu dagarnir Flug Landvistarleyfi Húsnæði Fjármál Umsóknarferlið

Fyrstu dagarnir

Allir nemar á fyrsta ári byrja á því að fara í tveggja vikna “Crash Course” sem er ungverskunámskeið. Þar er farið yfir undirstöðuatriðin í ungversku og einnig aðeins farið yfir ungverska menningu. Nemendur geta svo spurt kennarana um bæði tungumál og menningu. Þessir dagar eru dálítið sérstakir því maður kynnist rosalega mörgu fólki frá ýmsum löndum og maður verður oft dálítið ringlaður. Sem betur fer er námskeiðið ekkert allt of strangt þannig að maður hefur nokkuð rými til þess að aðlagast landinu og kynnast fólkinu.

Að þessu námskeiði loknu hefst skólinn á fullu og þá eru það lífræn eðlisfræði (biophysics) og efnafræði sem sjá til þess allir hafi eitthvað fyrir stafni. Það er mjög mikilvægt að vanmeta ekki fyrstu önnina því margir eru að stíga sín fyrstu skref í háskólanámi og svo ekki sé minnst á alla þá streitu sem fylgir því að koma sér fyrir í nýju landi. Lykillinn er einfaldlega að láta ekki deigan síga og halda áfram að læra þrátt fyrir að fyrsta önnin sé tiltölulega þurr.


Vefstjóri