Læknanám í Ungverjalandi
Fyrstu dagarnir Flug Landvistarleyfi Húsnæði Fjármál Umsóknarferlið

Flug

Það eru margar leiðir til þess að komast til Ungverjalands. Yfirleitt þarf að milli lenda í Köben eða London. Við mælum með að kaupa bara flug aðra leið, svona fyrst um sinn því maður veit ekki hvernig manni mun ganga í jólaprófunum og það veltur mikið á þeim hvenær maður kemst heim. Til að komast til London eða Köben er yfirleitt flogið með Iceland Express en það er líka hægt að fara með Flugleiðum og kaupa miða aðra leið í gegnum Stúdentaferðir.

Frá þessum millilendingarstöðum er svo hægt að fljúga beint til Búdapest. Frá London er það helst Sky Europe eða Easy Jet. En frá Köben er hægt að fljúga með Sterling, Sky Europe eða skjótast til Malmö og fljúga með Wizz Air. Svo að lokum er örugglega hægt að bóka ferðir aðra leið með Malev (aðalungverska flugfélagið) í gegnum Stúdentaferðir.


Vefstjóri