|
Fyrstu dagarnir
Flug
Landvistarleyfi
Húsnæði
Fjármál
Umsóknarferlið
|
Landvistarleyfi
Eftir að Ungverjaland varð aðili að ESB er orðið mjög auðvelt að sækja um landvistarleyfi. Það þarf þó að gera innan þriggja mánaða eftir komu til landsins. Landvistarleyfið gildir síðan til loka námsins. Þetta er nýtt (frá og með skólaárinu 2007/2008), en áður giltu landvistarleyfi aðeins í eitt ár í senn. Til þess að geta sótt um þurfa umsækjendur að framvísa eftirfarandi gögnum:
Gögn sem fást á Íslandi:
1. Gilt vegabréf
2. Yfirlýsingu frá banka um þú eigir pening á bankabók til þess að geta framfleytt þér. Við mælum með að fá þessa yfirlýsingu rétt áður en skólagjöldin eru greidd því sú upphæð er alveg nóg. Annars dugir líka að koma með yfirlýsingu frá LÍN um að þú sért á framfærslu frá þeim.
3. Sjúkratryggingu (Evrópska sjúkratryggingarkortið sem fæst hjá Tryggingastofnun Ríkisins). Einnig er hægt að fá DOTE skólatrygginguna sem kostar um 8.000 ISK á önn og dekkar allan sjúkrakostnað innan Ungverjalands
Gögn sem fást í Ungverjalandi:
4. Staðfestingu um að við séum námsmenn í DOTE (nafnið á skólanum). Fæst ókeypis á skrifstofu skólans (Education Office).
5. Leigusamning og einhvers konar fasteignarbréf. Þetta er nokkuð sem þú færð þegar þú ferð inn á stúdentagarðana eða leigir þér íbúð.
6. Frímerki upp á 1.500 HUF sem fást á næsta pósthúsi.
Frekari upplýsingar má finna hjá ungverska útlendingaeftirlitinu.
|