|
Fyrstu dagarnir
Flug
Landvistarleyfi
Húsnæði
Fjármál
Umsóknarferlið
|
Húsnæði
Tveir möguleikar. Annars vegar fara á stúdentagarðana eða hins vegar að leigja sér íbúð. Að búa á stúdentagörðunum er líklega aðeins ódýrara (um 25.000 ISK með öllum gjöldum) en ef þú leigir íbúð þá getur búist við a.m.k. 5.000 ISK til viðbótar á mánuði.
Kostir stúdentagarðanna eru: Þú kynnist mikið af samnemendum þínum, ekkert vesen, þrifið hjá þér vikulega.
Ókostir: Lítið rými (um 20 m2), getur verið hávaðasamt á kvöldin, staðsetningin er slæm (það er langt í allt nema skólann).
Kostir íbúðar: Þú getur valið hvað þú vilt stóra íbúð og staðsetningu, þú færð yfirleitt meira fyrir peninginn.
Ókostir: Þú þarft að finna íbúð, eigendur geta verið misviðkunnanlegir.
Fyrstu dagana þarf maður að gista á hóteli, á stúdentagörðunum (ef maður ætlar þangað) eða fá að gista hjá einhverjum landa sínum þarna úti.
|