Læknanám í Ungverjalandi
Fyrstu dagarnir Flug Landvistarleyfi Húsnæði Fjármál Umsóknarferlið

Fjármál

Jæja, það verður víst ekki umflúið að ræða fjármálahliðina á þessu ævintýri. LÍN lánar bæði fyrir framfærslu og skólagjöldum umfram 45 þúsund krónur á ári (nemendur þurfa s.s. sjálfir að standa straum af jafnmiklum skólagjöldum og nemendur við HÍ). Þetta er nýlegt, en áður var ekki lánað fyrir skólagjöldum í grunnháskólanámi (fyrstu þrjú árin) erlendis. Frá og með skólaárinu 2007/2008 er hins vegar lánað fyrir skólagjöldunum allan tímann.

Skólagjöldin hafa heldur hækkað undanfarin ár og standa nú í 9.800 bandarískum dollurum á ári. Rétt er þó að nefna að skólinn skuldbindur sig til þess að hækka skólagjöldin ekki umfram ákveðna upphæð yfir allan námstíma nemanda, að því gefnu að viðkomandi haldi eðlilegri námsframvindu. Dæmi um hvernig þetta virkar eru skólagjöld 2. árs nema (2007/2008), sem eru 8.000 dollarar á ári og munu ekki fara hærra en 8.500 á meðan viðkomandi nemendur falla ekki um ár.


Vefstjóri