|
Fyrstu dagarnir
Flug
Landvistarleyfi
Húsnæði
Fjármál
Umsóknarferlið
|
Umsóknarferlið
Til þess að komast inn í skólann þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf. Þar er prófað úr líffræði og svo geta nemendur valið um eðlisfræði eða efnafræði. Þetta próf er munnlegt og fer fram á ensku. Námsefnið er á svipuðu stigi og á náttúrufræðibrautum í framhaldsskólum á Íslandi og þau hafa ekki vafist fyrir mörgum. Það er þó rétt að taka fram að þó að maður komist í gegnum inntökuprófin þá segir það lítið sem ekkert um hvernig framhaldið mun verða í náminu, því ólíkt Íslandi er inntökuprófið ekki hugsað sem aðalsían inn í skólann. Flestir sem sækja um komast inn, en hins vegar er gríðarlega mikið fall á fyrstu tveimur árunum í náminu.
Inntökuprófið er framkvæmt af kennurum skólans þannig að það eru tvær leiðir í boði til þess að taka þau. Annars vegar að fara til Ungverjalands og hins vegar er hægt að taka prófið á Íslandi, en þá þarf að hafa samband við umboðsmann skólans og hann tekur einhverja þóknun fyrir. Við mælum eindregið með því að áhugasamir hafi samband við okkur á ungverjaland@ungverjaland.net til þess að fá frekari upplýsingar um ferlið og hvernig sé best að hátta þessum málum. Einnig bendum við á skrifstofu skólans, info@edu.dote.hu, en þeir hafa allar nákvæmar upplýsingar varðandi hvenær og hvernig inntökuprófunum er háttað.
|