Læknanám í Ungverjalandi

Velkomin

Þessi síða hefur verið sett á laggirnar á vegum íslenskra nemenda við Háskólann í Debrecen. Tilgangur hennar er að veita upplýsingar um skólann til allra sem vilja forvitnast um okkur og hvað við gerum. Fram til þessa hafa upplýsingar varðandi skólann verið af frekar skornum skammti en við vonumst til þess að geta bætt nokkuð úr því með þessari síðu.

Að sjálfsögðu svarar síðan ekki öllum spurningum sem fólki kann að detta í hug og því hvetjum við alla þá sem hafa frekari spurningar til þess að senda tölvupóst á skrifstofu skólans, info@edu.dote.hu, eða á okkur á ungverjaland@ungverjaland.net og við munum reyna að svara eins fljótt og auðið er.

Nýnemar 2008 athugið: Hægt er að nálgast upplýsingabækling síðan í fyrra um flest allt það sem þarf að vita áður en komið er út og hvernig á að lifa af fyrstu dagana :) Hægt er að nálgast hann hér
Nýnemum er einnig bent á spjallþráð um nýnemahitting á spjallborðinu okkar: http://ungverjaland.net/spjall/viewtopic.php?t=249


Vefstjóri