|
Inngangur
Uppbygging
Prófskipulag
Skólinn
Skólagjöld
Saga
Myndir
|
Námið
Námið í Debrecen er sex ár. Fyrstu þrjú árin eru bókleg, að nánast öllu leyti. Stúdentar fá þó nasasjón af klínik á þriðja ári. Síðari þrjú árin eru verkleg. Eiginlegri kennslu lýkur á fimmta ári, en sjötta árið í Debrecen er um margt líkt kandídatsárinu á Íslandi. Sjötta árinu lýkur með embættisprófi og leyfisveitingu. Lækningaleyfið gildir á ESB-svæðinu, og er því fullgilt á Íslandi, og um alla Evrópu. Sjö Íslendingar hafa lokið námi frá Háskólanum í Debrecen.
|