Læknanám í Ungverjalandi
Inngangur Uppbygging Prófskipulag Skólinn Skólagjöld Saga Myndir

Uppbygging námsins

Námið, eins og gefur að skilja, er strembið, sérstaklega fyrstu tvö árin. Fólk er að laga sig að nýju umhverfi og máli sem ekki er beint auðlært. Svo er annað sem fólk þekkir ekki úr HÍ, en það er hin ansi mikla tímasókn. Með því er átt við að það er skyldumæting í marga tíma, sérstaklega á fyrstu þremur árunum. Einu gildir hvort þar er átt við fyrirlestra, svokallaða seminartíma eða verklega tíma. Þetta gerir það hins vegar að verkum að nemendur hafa mikinn og góðan aðgang að kennurum, sem eru tilbúnir að svara spurningum nemenda um efnið.

Verklegir tímar eru einn helsti kosturinn við Háskólann í Debrecen. Þeir eru margir og yfirleitt er kennslan þar góð og markviss. Eðlis-, efna-, lífefna-, lífeðlis-, líffæra- og meinafræði verklegir tímar eru ómissandi partur af náminu, sérstaklega líffæra og meinafræðin. Krufningar eru í báðum fögum, a.m.k. einu sinni í viku. Þær gefa stúdentum mjög gott tækifæri til að komast í návígi við mannslíkaman. Þetta er bráðnauðsynlegt bæði til þess að læra inn á líkamann í heilbrigðu og sjúklegu ástandi og einnig til að sjá þær breytingar sem hinir ýmsu sjúkdómar valda á líkamanum.


Eftir stendur ómetanleg reynsla sem fylgir því að búa erlendis, sem og heilsteypt kjarngóð þekking á læknisfræði sem á eftir að reynast nemendum vel á ögurstund.


Vefstjóri