Læknanám í Ungverjalandi
Inngangur Uppbygging Prófskipulag Skólinn Skólagjöld Saga Myndir

Prófskipulagið

Próf í Háskólanum í Debrecen eru munnleg. Að frátöldum prófum á fyrsta ári, eru öll lokapróf í skólanum munnleg, en þetta er gömul og góð hefð sem er í heiðri höfð víða í Evrópu. Þetta hefur tvennt í för með sér.

1. Nemendur skrá sig til prófs á próftímabili sem er 6 vikur. Það eru tvö próftímabil ári, fyrra sem hefst í lok desember og það síðara sem hefst í miðjum maí mánuði. Nemendur ráða því að mestu leyti sjálfir hvenær og í hvaða röð þeir taka próf.

2. Þar sem prófin eru munnleg þarf ekki að bíða svo vikum skipti eftir einkunn. Að loknu munnlegu prófi gefur viðkomandi prófessor einkunn, byggða á því sem nemandinn lét frá sér fara í prófinu.

Oft á tíðum eru nemendur ósáttir við þá einkunn sem prófessor býður. Þá er einstaka sinnum hægt að biðjast vægðar, og fá auka spurningu. Ef ekki, þá hafa nemendur þrjú tækifæri til að taka hvert próf. A, B og C séns. Þetta kemur sér vel ef nemendur falla, eða vilja bæta einkunnir. Falli nemandi á C-séns verður viðkomandi að endurtaka fagið, og er í mörgum tilvikum ekki hleypt upp á næsta ár.


Vefstjóri