Læknanám í Ungverjalandi
Inngangur Uppbygging Prófskipulag Skólinn Skólagjöld Saga Myndir

Skólinn

Læknadeildin í Debrecen er nokkuð stór, og partur af enn stærri háskóla. Háskólinn í Debrecen er með þeim stærri í Ungverjalandi, og eru yfir 20.000 stúdentar við nám hverju sinni. Læknadeildin tekur inn um 250 erlenda nemendur á ári, en þeim fækkar skiljanlega töluvert, eftir því sem líður á námið. Yfirleitt eru um 90 eftir þegar komið er á fjórða ár. Flestir heltast úr lestinni á fyrstu tveimur árunum, en alltaf eru nokkrir sem falla á þriðja árinu.


Vefstjóri