Læknanám í Ungverjalandi
Íslendingarnir Félagslífið

Íslendingarnir

Nemendur sem stunda nám í Debrecen eru jafn fjölbreyttir persónuleikar og þeir eru margir. Alls eru 60-70 íslenskir nemendur sem leggja hér stund á læknisfræði og tannlæknisfræði. Einnig má þar finna nokkrar hræður sem hafa alls engan áhuga á læknisfræði heldur hafa einungis fengið að fljóta með. Þetta eru jú makar, börn og nokkrir hundar. Þannig víða má finna íslenskt gæðablóð.

Tíð spurning er hvað maður geri nú eiginlega þarna? Fyrir utan það að hafa ALLTAF möguleikann á meiri lestri er hægt að finna nánast nákvæmlega alla þá afþreyingu sem er einnig á Íslandi: kvikmyndahús,videoleigur,keilusal,billjardstofur og fullt fullt af skemmtilegu fólki.


Vefstjóri