Læknanám í Ungverjalandi
Íslendingarnir Félagslífið

Félagslífið

Í skólann kemur fólk víða að. Það ber helst að nefna Ísraela, Írana og Norðmenn sem skipa stóran sess í 800 manna samfélagi. Félagslífið eykst með hverju árinu og atburðum innan veggja skólans fjölgar jafnt og þétt.




Reglulega eru skipulögð bjórkvöld þar sem nemendum er kleift að slétta úr klaufunum í selskap við aðra nemendur. Árshátíðin („Gyulaballið“) okkar hefur undanfarin ár verið einstaklega vel heppnuð sem og International Food Day þar sem hægt er að bragða á mat frá hinum ýmsu heimshornum. Hvernig við Íslendingar unnum ekki með sviðakjamma og kjötsúpu er mér enn óskiljanlegt?


Vefstjóri