|
Almennt
Námið
|
Spurt og svarað - Almennt
Eru skólagjöld?
Já, skólagjöld eru 9.800 dollarar á ári.
Er lánið lánshæft hjá LÍN?
Námið er lánshæft hjá LÍN, en þeir lána fyrir framfærslu, skólagjöldum, bókum og ferðakostnaði.
Er auðvelt að fá húsnæði?
Það getur verið smá vesen í byrjun að redda sér húsnæði og maður getur lent í því að þurfa að sætta sig við miður góða íbúð fyrstu mánuðina og flytja svo í eitthvað betra þegar líður á. Svo er einnig boðið upp á stúdentagarða.
Hvernig eru maka- og fjölskyldumál?
Það getur reynst erfitt að koma fyrir fjölskyldunni. Makar sem stunda ekki nám, eiga ekki auðvelt með að fá vinnu. Það eru þó til dæmi um það en í þeim tilvikum hefur hún verið mjög illa launuð og oft getur það borgað sig að vinna heima á Íslandi í skorpum.
Barnapössun og dagheimili eru fyrir hendi. Þar er þó eingöngu töluð ungverska.
Eru margir Íslendingar þarna?
Það er töluvert af Íslendingum hérna úti og hópurinn fer stækkandi. Núna eru 60-70 nemendur, dreifðir yfir öll skólaárin.
|