Læknanám í Ungverjalandi
Almennt Námið

Spurt og svarað - Námið

Hvað er námið langt?
Námið er sex ár allt í allt og að því loknu er veitt lækningaleyfi í Evrópusambandinu (ESB). Þetta er í raun aðeins styttra nám en á Íslandi, því hér er sjötta árið hliðstætt kandídatsárinu heima. Nemendur héðan hafa þó kosið að bæta við sig kandídatsárinu.

Hafa einhverjir lokið námi?
Sjö nemar hafa útskrifast sem læknar héðan.

Er mikið fall?
Það er þó nokkurt fall í skólanum, rúmlega 60%. Til dæmis má nefna árganginn sem hóf nám árið 2002. Þar voru í upphafi um 200 manns en á skólaárinu 2006/2007 voru aðeins um 80 manns eftir. Helsta ástæðan fyrir þessu mikla falli er sú að inntökuprófið hér er auðveldara en víða annarsstaðar en kröfurnar sem skólinn gerir á fyrstu árunum eru mörgum nemendum ofviða.

Hvað er skólinn stór?
Hann er frekar stór þar sem hann heldur upp námi fyrir bæði ungverska og erlenda nemendur. Hér um 800 erlendir nemendur og 900 Ungverjar.


Vefstjóri