|
Budapest
Ungverjaland
|
Búdapest
Búdapest er höfuðborg Ungverjalands. Þar er íbúafjöldi um tvær milljónir manna. Dóná rennur milli tveggja hluta borgarinnar, Pest og Búda. Hún tengir Búdapest við 8 önnur lönd. Þar er elsta neðanjarðarlesta brautin á öllu meginlandi Evrópu (gula línan)
Fyrir árið 1873 voru Búda og Pest sitthvor borgin en það ár var byggð hin fræga keðjubrú sem tengir Búda og Pest saman. Borgin hefur byggst upp á alveg á ótrúlegum hraða u.þ.b. á síðastliðnum 150 árum, flestar þær byggingar eyðilögðust í styrjöldum eða í flóðunum miklu sem voru árið 1839 en þá þurrkaðist Pest næstum út. Nú hafa flestar þessar byggingarnar verið endurreistar í sínum upprunalega stíl.
Þetta er stórkostleg borg og margt spennandi hægt að sjá og gera. Hér er stiklað á stóru um það:
MATTHÍASAR KIRKJA: stendur á kastalahæðinni í Búda. Þessi kirkja var upprunalega byggð á 13. öld, endurbyggð mörgum sinnum síðan þá. Núverandi útlit birtist ekki fyrr en á 19. öld. Hún er byggð í Barrokstíl.
Meira
|