Læknanám í Ungverjalandi
Budapest Ungverjaland

Búdapest

TURNAR FISKIMANNANNA: stendur á kastalahæðinni í Búda og þar er útsýnir yfir alla Pest. Þarna voru fiskimarkaðir þangað til 1830. Þá voru þeir sprengdir en svo endurbyggðir um 1900.
BÚDA KASTALI: Eftir endurbyggingu að lokinni síðari heimstyrjöld hefur þessi stórkostlega fallegi kastali verið notaður sem þjóðlistasafn fyrir málverk og önnur listverk. Hann er opinn öllum til að skoða.
ÞINGHÚSIÐ: Er Pest megin alveg við bakka Dóná. Það var byggt á árunum 1885-1906. Byggingin er risastór og virðuleg, þekur yfir 18000 m2 og er um 268 m langt.
BASILÍKA HEILAGS STEFÁNS: Er byggð til minningar um Stefán konung Ungverjalands sem er sagður vera stofnandi landsins. Nauðsynlegt að skoða hana.
HETJUTORGIÐ: Þar voru haldnar miklar hersýningar á tímum kommúnismans. Á miðju torginu er 36 m há stytta af Gabríelli erkiengli.
Margt annað er hægt að sjá og gera þarna t.d. Váci Utca (aðalgöngugatan), Gillert hæð, Gundel veitingarhúsið (5 stjörnu staður), svo eitthvað sé nefnt.

Tilbaka


Vefstjóri