|
Budapest
Ungverjaland
|
Ungverjaland
Ungverjaland er ekki mikið um sig enda aðeins minna en Ísland. Höfuðborg Ungverjalands er Búdapest og er hún langstærsta borgin í Ungverjalandi en Debrecen kemur svo þar á eftir. Hér er töluð ungverska sem er ekki talin skyld nokkru öðru máli öðru en finnsku. Þetta mál er nokkuð torskilið og seinlært en með miklum metnaði ná gestkomandi nokkrum tökum á málinu. Þar sem rússneska var kennd sem annað mál, allt til 1989, er ensku kunnátta Ungverja ekki neitt til þess að hrópa húrra fyrir. Almennt talar þó ungt fólk ensku og sífellt fleiri af eldri kynslóðinni fylgja á eftir.
Landið er staðsett í Mið-Evrópu, austur við Austurríki. Hér er flatlent og er hæsti tindurinn ekki nema 1014 m. Veðurfarið er friðsælt, hér er nánast aldrei rok en veturnir eru þó kaldir þar sem frostið getur náð allt að -20°C en svona um -5°C að meðaltali. Að alla jöfnu frystir ekki fyrr en í desember og frosti líkur yfirleitt í byrjun mars. Sumrin eru einstaklega sólrík og hlý og það er óheyrt að fólk kvarti yfir hitaleysi, það er frekar of heitt enda er hitinn yfir heitustu mánuðina um 30 - 35°C.
Ungverjar, sem eru um 10 milljónir, hafa gengið í gegnum ýmislegt í gegnum söguna og tapað flestum stríðum sem þeir hafa tekið þátt, allavega um síðustu aldir. Þrátt fyrir það eru þeir stolt þjóð sem býr yfir gríðarlega háu menntunarstigi og þess má geta að Ungverjar eiga flesta Nóbelsverðlaunahafa miðað við höfðatölu á eftir Íslendingum. Það verður samt að segjast víða má en sjá tjón í þjóðarandanum eftir tíð Sovétmanna og ýmis seinagangur og skriffinnska getur farið endalaust í taugarnar á manni.
|